Námskeið á Bifröst

 NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!!
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ?
Skref fyrir skref með glærusýningu.

KLÓSETTRÚLLUR: VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?

Hringborðsumræður.

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel).

DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður; nokkrir sérfræðingar.

LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi -
Opin umræða.

TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir.

HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning.

SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar.

ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir.

AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir.

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.

AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann.

AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.



Skráning er hafin í s. 666-9999.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Þetta hlítur að vera námskeið nr. 2 ég er löngu búinn að fara á þetta námskeið og svindlið var að það var karlmaður sem hélt þetta námskeið.

Gangi þér vel að skrá.

Ertu hætt í Gunnubúð? 

Sverrir Einarsson, 9.9.2008 kl. 11:09

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

 Flott

Kristín Katla Árnadóttir, 9.9.2008 kl. 17:17

3 Smámynd: Gunna-Polly

nei Sverrir ég hætti 23 sept

Gunna-Polly, 9.9.2008 kl. 19:19

4 Smámynd: Einar Indriðason

Og... hvað á að gera eftir Gunnubúð?

Einar Indriðason, 10.9.2008 kl. 08:17

5 Smámynd: Gunna-Polly

www.ilva.is

Gunna-Polly, 10.9.2008 kl. 08:54

6 Smámynd: Einar Indriðason

Ach so.....

(Gat verið ... húsgögn.  Frá skandinavíu!

Einar Indriðason, 10.9.2008 kl. 10:08

7 Smámynd: Gunna-Polly

ég er svo  skandinavísk

Gunna-Polly, 10.9.2008 kl. 11:41

8 Smámynd: Sverrir Einarsson

Og ég sem hélt að þú værir svooo Sundísk,

Mæli með að IKEA fyrrum Gunnubúð, láti sleggjur fylgja með stóruskápunum sem þeir selja................nei bara svo þeir komist fyrir á þeim stöðum sem þeim er ættlað að vera og eiga að passa samkv. mælingum hehe.

HMMMM skoða þetta ilvudæmi hvað sem það svo er ...............kannski spítuhrúguverslun.

Sverrir Einarsson, 11.9.2008 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband