Heimasæturnar sjálfráða
2.2.2008 | 00:09
Það var í dag 2 febrúar fyrir akkúrat 18 árum að ég afrekaði það að fæða 2 frískar stúlkur með 2 mín millibili í heiminn á sjúkrahúsi í Värnamo Svíþjóð , það standa 2 setningar upp úr frá þeim degi , annað var þegar komið var inn í fæðingarherbergið þar sem fæðing var að hefjast og spurt hvort tveir sjúkraflutningsmenn mættu vera viðstaddir fæðinguna? þar sem þeir hefðu aldrei séð tvíbura fæðingu , Þá svaraði Gunna háum rómi "NEI !! þeir geta sko búið til sína eigin tvíburar!!" Sú síðari var þegar Regína var fædd og doktorinn ætlaði að snúa Önnu sem var sitjandi, þá kom þessi fræga setning frá annarri ljósmóðurinni"doktor doktor en fot" og ég sagði upphátt "gat skeð krakki með eina löpp "en út kom hún með fætur á undan og það 2 , tel ég það mitt mesta afrek í lífinu að eignast þær tvær . Þessar gelgjur eru sem sagt 18 ára í dag og lagalega séð komnar úr ábyrgð :P
Athugasemdir
Så flickorna är födda i Sverige...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.2.2008 kl. 00:33
Til hamingju með daginn og Gelgjurnar
Ég held að þessi börn okkar fari aldrei úr ábyrgð.
Jóna Á. Gísladóttir, 2.2.2008 kl. 00:35
Góður þessi með sjúkraflutningamennina!
Ásgeir Rúnar Helgason, 2.2.2008 kl. 11:44
Góð saga.Til hamingju með fallegu stúlkurnar þínar.
Kristín Katla Árnadóttir, 2.2.2008 kl. 13:25
Congat með stelpurnar, styttist í að minn verði 18
Ofi, 2.2.2008 kl. 18:07
Tl lukku með fullorðnu dömurnar
Dísa Dóra, 2.2.2008 kl. 20:41
Til lukku með þessar flottu skvísur. Megi þeim farnast vel.
Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2008 kl. 20:20
Mikið eru þær orðnar miklar skvísur, til hamingju með þær ...
Maddý (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 23:01
takk öll :)
Gunna-Polly, 3.2.2008 kl. 23:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.