Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Evrópumeistarar?

Stelpurnar mínar eru búnar að koma mér í smáklípu! eins og allir vita er ég Þróttari og held með Þrótti í Íslenska boltanum. Þegar þær voru 7 ára byrjuðu þær að æfa fótbolta með Þrótti og eftir fyrsta sumarið fengu þær verðlaun fyrir bestu framfarir og hættu í fótbolta!. 1 og 1/2 ári seinna byrjuðu þær aftur og æfðu með Þrótti þar til í fyrra er þær urðu Íslandsmeistarar í 7 manna bolta haustið 2006 þá hættu þær ! svo gerist það núna að þær ákveða að byrja að æfa aftur og það með 2 flokki kvenna í  Breiðablik!, það verður mjög skrítið að fara á völlinn og sjá þær keppa á móti sínum gömlu félögum en ætli þær endi bara ekki sem Evrópumeistarar og hætta svo , en ég held samt áfram að vera ÞróttariTounge

22813small_Logo_litid


Afsakið

fáfræði mína en af hverju er þessi frétt undir Fólkið en ekki íþróttir á mbl? þetta er íþróttafrétt og það frábær frétt
mbl.is Í 2. sæti á bikarmóti samkynhneigðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BLÁTT ÁFRAM

Þetta eru skilaboð til allra , það geta allir lent í þessu , börnin ykkar, baranbörn , vinir og vandamenn og
þanig að lesið þetta vel

FRÁ BLÁTT ÁFRAM.. samtökum.

Kæri vinur,
It is important to show children that not all adults are caught up in the conspiracy of silence!
Bið þig að senda þetta áfram á þinn vinahóp og spyrja hvort þau vilji hafa áhrif á hvort börn verði fyrir kynferðislegu ofbeldi á Íslandi ??

Eftir fyrstu auglýsingaherferð Blátt áfram, kom til mín kona með tárin í augunum og sagðist vilja þakka fyrir að hafa séð auglýsinguna í sjónvarpinu. Sat og horfði á með 11 ára gamalli dóttur sinni sem brotnaði saman og sagði frá kynferðislegu ofbeldi.

Önnur ung stúlka sagði frá og kom þá í ljós að sá maður var að beita margar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi og fékk hann dóm í kjölfarið.

Þetta hefur áhrif !

1 af hverjum 5 stúlkum og 1 af hverjum 10 drengjum verða fyrir kynferðislgu ofbeldi fyrir 18 ára aldur(Hrefna Ólafsdóttir 2002)

Styrktartónleikar verða haldnir á fimmtudaginn til að safna fyrir birtingu á nýrri auglýsingaherferð, átakið „Verndarar barna“

Blátt áfram þarf á þinni hjálp að halda, komdu og hlustaðu á eina af þínum uppáhaldshljómsveitum og styrktu gott málefni.


Styrktartónleikar 8 maí 2008
Stórtónleikar á NASA

Styrktar tónleikar á NASA 8 maí 2008.

12 af bestu hljómsveitum landsins koma fram

Húsið opnar klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00

Fram koma:

Nylon, Sálin hans Jóns míns, Ný Dönsk, Ljótu Hálfvitarnir, Buff, Á móti sól, Merzedes club, Rokksveit Rúnars Júlíussonar, Einar Ágúst, Brain Police, Sverrir Bergmann, Bermuda

Miðaverð er 2000 kr og rennur allur ágóðinn til Blátt áfram.

Safnað er fyrir nýrri auglýsingaherferð „Verndarar barna“

Miðasala á Rizzo Pizzería á Grensásveg !!

Blátt áfram þakkar fyrir þetta frábæra framtak!



Bestu kveðjur,
Sigríður Björnsdóttir
Blátt áfram!



Kringlunni4-6, 6. hæð, 103 Reykjavík
Sími GSM (mobile): 893-2929, Netfang (e-mail): sigga@blattafram.is
Heimasíða (homepage): www.blattafram.is Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband