Birgjar og hækkanir

Verðhækkanir birgja

Að undanförnu hafa bæði heildsalar og innlendir framleiðendur sem selja vörur sínar til matvöruverslana hækkað verð. Neytendasamtökin hafa ekki möguleika til að rannsaka nánar þessar hækkanir. En þar sem nú eru viðkvæmir tímar með tilliti til að samþykktar aðgerðir til að lækka verð á matvælum taka gildi 1. mars nk. hafa Neytendasamtökin tekið saman lista yfir þær hækkanir sem sem tekið hafa gildi síðan 1. desember sl. Þetta er ekki síst gert til að neytendur geti betur áttað sig á hvað er að gerast í matvöruversluninni.

Um leið hvetja Neytendasamtökin framleiðendur sem seljendur að halda aftur af sér hvað varðar verðhækkanir. Jafnframt munu Neytendasamtökin með mikilli ánægju taka þau fyrirtæki út af þessum lista ef þau draga til baka hækkanir sínar, hvort sem þær hafa tekið gildi nú þegar eða eru væntanlegar. Einnig hvetja samtökin heildsala og innlenda framleiðendur sem ekki hækka verð hjá sér nú að tilkynna um það til Neytendasamtakanna. Samtökin munu jafnframt bæta við þennan lista berist þeim upplýsingar um fleiri hækkanir.

Í töflu hér fyrir neðan má sjá hvaða heildsalar/framleiðendur hafa hækkað verð á vörum sínum að undanförnu. Þar kemur fram hvaða vörur þeir selja, auk verðhækkana á þeim (ýmist er um meðalhækkun að ræða eða hækkun á ákveðnu bili). Einnig hvenær verðhækkanirnar tóku/taka gildi og loks hvaða skýringar eru gefnar á hækkunum

 Nafn birgja Vörur sem viðkomandi selur

Hækkun1)

Hvenær tók/tekur hækkun gildi

 Ástæður sem gefnar eru fyrir hækkun
 Ásbjörn Ólafsson Knorr, Prins Póló, Maizena, Sultur frá Den gamle fabrik og fleira.

4%

15. jan.

 Gengisbreytingar.
 Beiersdorf Nivea vörur.

0-3,9%

1. jan.

 Hækkun á aðföngum, vísitölubreytingar og gengisþróun.
 Bergdal Vörur frá Bonduelle, Heinz bakaðar baunir, Sun Maid, Holger.

3-5%

1. jan.

 Erlendar verðhækkanir.
 BéBé Hreinlætisvörur frá Frigg, Mjöll og fleirum.

3-12%

18. des.

 Ekki hækkað í 18 mánuði. Hækkanir á aðföngum og innfluttum vörum.
 Biobú Lífræn jógurt

2%

1. feb.

 Aukinn launakostnaður og hækkanir á umbúðum.
 Danól Blue Dragon núðlur,  Pickwick te, Weetabix, sælgæti frá Nestlé, Hatting og Daloon vörur.

3-5%

Í byrjun janúar

 Erlendar kostnaðarhækkanir. Í flestum tilvikum hækkar verð ekki frá Danól.
 Freyja Sælgæti

5%

1. feb.

 Verðhækkun á hráefni og umbúðum.
 Glóbus El´Vital snyrtivörur, vörur frá Excellence og Casting

4-5%

11. jan.

 Erlendar verðhækkanir.
 Góa Linda Sælgæti.

6-10,7%

15. jan.

 Ekki hækkað síðan 15. apríl 2005.
 Halldór Jónsson Wella snyrtivörur

3-5%

29. jan.

 Gengisbreytingar, erlendar og innlendar kostnaðarhækkanir.
 Iðnmark Stjörnupopp og ostapopp

7,5%

1. feb.

 Hækkun á innlendum og erlendum aðföngum (hráefni og umbúðir).
 Íslensk Ameríska Ýmsar tegundir af kexi frá Frón.

5,29%

1. jan.

 Launahækkanir, verðhækkun á hráefni.
 Íslensk Ameríska Ýmsar tegundir af kexi frá Kexverksmiðjunni.

6,14%

1. jan.

 Launahækkanir, verðhækkun á hráefni, flutningskostnaður.
 Íslensk Ameríska Vörur frá Ora.

4,17%

1. jan.

 Launahækkanir, hækkun á hráefni og umbúðum.
 K.K. Karlsson Sacla, tómatvörur, Celestial te, Wasa, Johnson, Ritter auk fleiri mat- og hreinlætisvara.

0-4,5%

1. feb.

 Erlendar hækkanir, aukinn flutningskostnaður og gengisbreytingar. Í flestum tilvikum hækkar verð ekki.
 Kaffitár Kaffi

5%

18.jan.

  
 Katla Púðursykur, bökunardropar, salt, flórsykur, kartöflumjöl og fleira.

4,9%

1. feb.

 Erlendar verðhækkanir auk hækkan innanlands.
 Kjarnafæði Kjöt og unnar kjötvörur

2,5%

2. Jan.

 Kostnaðarhækkanir
 Kjarnavörur Sultur, grautar, smjörlíki

5%

15. jan.

 Verðhækkanir á hráefni, umbúðum og fluttningum, auk launahækkana.
 Kjörís Ís og íssósur

3-4%

15. feb.

 Verðhækkanir á hráefni, launahækkanir og gengisbreytingar.
 Kólus, lakkrísgerð Sælgæti

8,3%

1. feb.

  
 Lýsi Lýsi, lýsispillur og fleiri heilsubótarvörur.

8%

1. des.

 Hefur ekki hækkað síðan 1. okt. 2003. Á síðasta ári hækkaði lifrarverð um 33%.
 Myllan Brauð og kökur.

5,8%

1. des.

 Launahækkanir, hækkun á hráefni og flutningskostnaði.
 Nathan & Olsen Sykurvörur frá Dansukker, Axa morgunmatur, Isio olíur, Philsbury hveiti, vörur frá Hagver, Libbys tómatsósa, Betty crocker bökunarvörur, Dove snyrtivörur, Lux sápur og fleira.

3,5%

1. des.2)

 Gengisbreytingar.
 Nói Síríus Sælgæti frá Nóa Síríus

5-9%

15. jan.

 Launahækkanir, hækkun á hráefni og umbúðum.
 Nói Síríus Kelloggs morgunverðarkorn

3,6%

15. jan.

 Gengisbreytingar, erlendar verðhækkanir.
 Nói Síríus Cadbury's sælgæti

4,5%

15. jan.

 Gengisbreytingar, erlendar verðhækkanir.
 O. Johnson og Kaaber Mömmu vörur,vörur frá Ainsley, Del Monte, Duc d´O, Franko, Griesson, Kim, Kiwi, Melroses, LF&H, Melitta, Pågen, Librese, Libero, Edet, Supreme salt, T&L sykurvörur, Lyle´s, Vilko. Braga kaffi, Rúbín kaffi, Ríó kaffi auk fleiri vara.

4,3%

11.jan

 Gengisbreytingar, annar kostnaðarauki.
 Papco Klósettpappír, eldhúsrúllur.

6,2%

12. jan.

 Hækkun á hráefnisverði.
 Plastprent Plastvörur og umbúðir

5-7%

1. feb.

 Launahækkanir, aukin flutningskostnaður auk annarra innlendra hækkana.
 Síld og fiskur (Ali) Kjöt og unnar kjötvörur

5-6%

1. feb.

 Aukin launa- og umbúðakostnaður
 Sláturfélag Suðurlands Unnar kjötvörur, sinnep.

3-5%

22. jan.

  
 Sláturfélag Suðurlands McCormick krydd (pipar og piparblöndur), Barilla

3-9,7%

15. - 31. jan.

 Erlendar kostnaðarhækkanir (mikil hækkun á heimsmarkaðsverði á  pipar).
 Sól Ávaxtasafar

7,2%

1. jan.

 Hækkun á heimsmarkaði á hráefnum.
 Vífilfell Gosdrykkir, ávaxtadrykkir, léttöl, kolsýrt vatn, áfengur bjór

4,6%

20. jan.

 Hækkun á hráefni og umbúðum, launahækkanir.
 Ölgerðin Egill Skallagrímsson Gosdrykkir, ávaxtadrykkir, snakk og sósur

4,9%

1. jan.

 Launahækkanir, verðbólga, verðhækkun á aðföngum.

Athugasemdir:
1)
Ýmist gefa birgjar upp hækkun sem meðalhækkun eða hækkun sem er á ákveðnu bili.
2) Hækkanir á bökunarvörum tóku gildi 1. janúar sl.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ætlaðru að halda áfram með þetta? Ef svo, gott. Áfram!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.2.2007 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband