Spennandi tímar framundan !
14.9.2008 | 12:55
Jæja þá er að koma að því ég hætti í Gunnubúð þann 23 september eftir 9 ára starf og ætla að byrja að vinna hjá ILVA það verður með miklum söknuði og örugglega slatta af tárum sem ég kveð samstarfmenn mína í Gunnu búð en það er komin tími til að breyta til , já og ég veit að það er "kreppa" og ég veit að það er kannski ekki skinsamlegt að segja upp í öruggri í vinnu á þessum tíma en ég ætla samt að gera það og afþakka allar neikvæðar athugasemdir hér
Athugasemdir
hann verður bara að bíta í það súra ,,,,,,,
Gunna-Polly, 14.9.2008 kl. 13:15
Ganga ikea sexkantar við ilva sexkantana?
(En hvað með sænsku kjötbollurnar?)
Einar Indriðason, 14.9.2008 kl. 13:55
það eru til ilva sexkantar sem eru nú sexkantar í lagi :) það kemur eitthvað annað en kjötbollur
Gunna-Polly, 14.9.2008 kl. 14:03
220 volta Kraft sjö-kantar, með eigið fjöltengi og ljós?
Einar Indriðason, 14.9.2008 kl. 14:06
Verður nú skrítið að hætta að hugsa um Ikea sem Gunnubúð
Gangi þér vel á nýja staðnum skvís
Dísa Dóra, 14.9.2008 kl. 17:05
Ef þú færð hærra kaup þarna þá er þetta dýrari búð en IKEA og þá held ég mig við IKEA og friggadellurnar.........annars kíki ég fljótlega.
Til lukku með starfann og verður þú þá yfirþjónustufulltrúakvartanamóttakari?
Sverrir Einarsson, 15.9.2008 kl. 09:08
iss þú kemur nú i kaffi
þetta er voða flott starfsheiti sko Customer service
Gunna-Polly, 15.9.2008 kl. 17:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.