Dagbók dagsins

12. Ágúst - Fluttum til Íslands að vinna. Settumst að fyrir austan.
Ég er svo spenntur. Það er svo fallegt hérna, fjöllin eru dýrleg. Ég get ekki beðið eftir að sjá hvernig þau líta út í vetur þegar það fer að snjóa.

14. Október - Ísland er fallegasta land í heimi. Laufin eru öll rauð og appelsínugul. Sáum hreindýr í dag. Þau eru svo falleg. Það er svo kyrrlátt hérna, algjör paradís. Ég ætla sko að búa hérna það sem eftir er.

11. Nóvember - Bráðum byrjar hreindýra veiðitímabilið. Ég get ekki ímyndað mér að einhver vilji drepa þessi fallegu dýr. Vona að það fari að snjóa.

Ég elska þetta land.

15. Nóvember - Það snjóaði í nótt. Þegar ég vaknaði var allt hvítt. Þetta er eins og póstkort. Við fórum út og hreinsuðum snjóinn af tröppunum og mokuðum innkeyrsluna. Fórum í snjóbolta slag (ég vann). Þegar snjóruðningstækið ruddi götuna, þurftum við að moka aftur. Ég elska Ísland!

22. Nóvember - Meiri snjór í nótt. Snjóruðningstækið lék sama leikinn með innskeyrsluna okkar. Fínt að vera hérna.

15. Desember - Enn meiri snjór í nótt. Komst ekki út úr innkeyrslunni og í vinnuna. Það er fallegt hérna, en ég er orðinn ansi þreyttur á að moka snjó. Helvítis snjóruðningstæki.

22. Desember - Meira af þessu hvíta drasli féll í nótt. Ég er kominn með blöðrur í lófana og illt í bakið af öllu þessu moki. Ég held að gaurinn á snjóruðningstækinu bíði við hornið þar til ég er búinn að moka innkeyrsluna. Helvítis asninn.

24. Desember - Gleðileg Jól, eða þannig! Enn meiri anskotans snjór. Ef ég næ í helvítis fíflið sem keyrir snjóruðningstækið, þá sver ég að ég drep helvítið. Af hverju salta þeir ekki helvítis göturnar hérna meira.

18. Janúar - Meiri hvítur skítur í nótt. Búinn að vera inni í þrjá daga. Bíllinn er fastur undir heilu fjalli af snjó sem fíflið á ruðningstækinu er búinn að ýta að innkeyrslunni okkar. Veðurfræðingurinn spáði 20 cm jafnföllnum snjó næstu nótt. Veistu hvað það eru margar skóflur?

19. Janúar - Helvítis veðurfræðingurinn hafði rangt fyrir sér. Við fengum 35 cm af skít í þetta skipti. Ef það heldur svona áfram þá bráðnar þetta drasl ekki fyrr en um mitt sumar. Snjóruðningstækið festi sig í götunni og helvítis fíflið kom og spurði hvort ég gæti lánað honum skóflu.
Eftir að hafa sagt honum að ég væri búinn að brjóta sex í vetur við að moka í burtu snjónum sem hann ýtti jafnóðum inn í innkeyrsluna, munaði minnstu að ég bryti eina enn á hausnum á honum.

21. janúar - Komst loksins út úr húsi í dag. Fór í búðina að versla og á leiðinni til baka hljóp hreindýr fyrir bílinn. Skemmdir upp á tugi þúsunda. Vildi að þessum kvikindum hefði verið útrýmt síðasta haust.

26. janúar - Fór með bílinn á verkstæði í bænum. Ótrúlegt hvað þetta ryðgar af öllu þessu saltdrasli sem þeir strá á vegina.

30. janúar - Flutti til Spánar. Skil ekki að nokkur maður með viti skuli vilja búa á skítaskeri eins og Íslandi!



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið ansk er gaman að lesa þetta Gunna Polly þetta er mjög fyndið

Kristín Katla Árnadóttir, 7.2.2008 kl. 14:43

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtileg lesning.  Það er ekkúrat út af svona dögum sem ég vil EKKI flytja, elska snjó og ófærð.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.2.2008 kl. 01:04

3 identicon

Ég átti þetta einu sinni á ensku en týndi því auðvitað í tölvuhruni.  Ef þú veist hvar ég gæti fundið þetta á ensku viltu þá hnippa í mig, ég sé að þetta er endalaust fyndið og gaman að lesa þetta, ætla að birta mynd á flickr og þetta væri tilvalið með ...

Maddý (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 09:58

4 Smámynd: Tiger

Já, ég er sammála því að það er endalaust hægt að hlægja af þessu því þetta er eitthvað sem minnir helst á Ragnar Reykás þeirra spaugstofumanna - að vera með einhverju í byrjun en enda það með  því að vera alfarið á móti sama hlut...

Tiger, 10.2.2008 kl. 18:59

5 identicon

Múhahahahahahahahhaha hvernig fór Arsenal leikurinn í gær Gunna mín??? Hahahahhahahah ÁFRAM MAN UTD ;)

Hallbera Eiríksdóttir (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 13:27

6 Smámynd: Gunna-Polly

hvar er ignore takkinn?? ekki trufla mig er að semja uppsagnarbréf til Wenger og það er ljótt að sparka í liggjandi fólk Hallbera Eiríksdóttir!!!

Gunna-Polly, 17.2.2008 kl. 13:32

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með afmælið í gær.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.2.2008 kl. 15:45

8 Smámynd: Steinn Hafliðason

Steinn Hafliðason, 24.2.2008 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband