Nýr texti við lagið Söknuður með Villa Vill ...................

 Fékk þetta sent á facebook og varð að deila þessu með ykkur

Lagið söknuður með Villa vill


Mér finnst ég varla heill né hálfur maður.
Og heldur blankur, því er verr.
Ef væri aur hjá þér, væri ég glaður.
Betur settur en ég er.

Eitt sinn verða allir menn að borga.
Eftir bartann daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.

Við gátum spreðað, gengið um,
gleymt okkur í búðunum.
Engin svör eru við stjórnarráð.
Gengið saman hönd í hönd.
Saman flogið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja lán.

Horfið er nú hlutabréf og lánsfé.
Í veski mínu hefur eymdin völd.
Í dag ræður bara sultarólin.
Nú einn ég sit um skuldavönd.

Eitt sinn verða allir menn að borga.
Eftir bartann daginn kemur nótt.
Ég harma það, en verð samt að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.

Ég horfi yfir bankann minn.
Hugsi hvort hann hleypi mér inn.
Ég alltaf gat treyst á þig.
Í að fjármagna mig.
Ég reyndar skulda allstaðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tína

Hahaha ég hef tekið eftir því að á þessum síðustu og verstu tímum þá poppa upp alveg ansi mörg skemmtileg skáld.

Knús á þig frábæra vinkona og eigðu ljúfa helgi.

P.s Hvernig er svo nyji vinnustaðurinn?

Tína, 17.10.2008 kl. 08:32

2 Smámynd: Gunna-Polly

jamm við íslendingar kunnum að gera grín að sjálfum okkur og brosa gegnum tárin, nýi vinnustaðurinn er snilld þú kemur og kíkir á mig þegar heilsan leyfir

knús á þig yndislegust 

Gunna-Polly, 17.10.2008 kl. 08:42

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gott að gera grín í kreppunni.

Stórt knús

Kristín Katla Árnadóttir, 24.10.2008 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband